Liðsfélagarnir Andy Meyrick og Kristjáns Einar að morgni tímatökudags.
LANGFLÓKNASTA BRAUTIN, SEGIR HEIMAMAÐURINN ANDY MEYRICK
Það eru fáir keppendur í Formúlu 3 þetta árið sem þekkja betur Oulton Park brautina en Andy Meyrick, liðsfélagi Kristjáns Einars hjá Carlin Motorsport. Andy hefur allt sitt líf búið skammt frá þessari braut í Norður-Wales og fór hana fyrst á hjóli 8 ára og ók hana fyrst í bíl 11 ára.
"Ég er kannski einn af fáum hér í dag sem er ekki of upptekin af því hvað þessi braut er erfið, þótt að hún sé þess eðlis að maður getur aldrei slakað á í henni" sagði Andy að morgni tímatökudags. "Það sem einkennir Oulton Park er að hún er með tólf beygjur sem eru allar mjög erfiðar og áskorun fyrir ökumenn og bíla. Tæknilega séð er þetta langflóknasta brautin sem við keppum á í Bretlandi í ár. Hér eru t.a.m. beygjur eins og Lodge Corner sem er 90 gráðu beygja. Aðkoman að henni er hulin þéttum trjám þannig að í nokkur sekúndubrot verður birtubreyting, ekki ósvipað og ef maður æki inn í göng, svo kemur beygjan sjálf og í beinu framhaldi er djúp dæld í brautinni áður en maður kemur upp í beina kaflann hjá pittinum.
Svo eru ákveðnar hættur við hana eins og grasið. Það er nánast hvergi möl við brautina, heldur grasbalar allt í kring sem þýðir að fari maður út af er erfiðara að stoppa. Ég hef sjálfsagt reynt flestar útgáfur af útafkeyrslum hér í gegnum tíðina og einhverntíma endaði ég alla leið uppi í tré! En þetta er heimabrautin mín og auðvitað þykir mér svolítið vænna um hana en aðrar," sagði Andy.
Andy Meyrick kom í F3 úr Formúlu Ford og Formúlu Renault og hefur leitt landsliðsflokkinn á öllum F3 æfingum keppnistímabilsins og oftar en ekki verið með all marga meistaraflokksbíla fyrir aftan sig líka. Innkoma hans og Kristjáns Einars á fyrstu æfingunni í Pembrey var glæsileg, þegar þeir voru með 1. og 2. besta tíma og í 12. og 13. sæti yfir heildina. "Ég bý að reynslunni hér og á hinum bresku brautunum eins og bretarnir í keppninni," sagði Andy. "En það verður fróðlegt að sjá hvað gerist í þriðju keppninni á Monza þar sem flestir keppendur verða að læra brautina í fyrsta sinn."
Andy Meyrick hefur leitt landsflokkinn á æfingum og í fyrstu tímatökum á Oulton Park hélt hann sínu striki og er fremstur landsflokksbíla í fyrstu keppni.