Eins og komiđ hefur fram í fjölmiđlum hefur Kristján Einar Kristjánsson tekiđ sćti í keppnisliđi breska meistaraliđsins Carlin Motorsport og mun aka í Formúlu 3 međ dyggum stuđningi SALT Investments sem er ađalbakhjarl hans í akstursíţróttum.
Keppnistímabiliđ hófst 19.02. međ ćfingu á Pembrey, en fyrsta keppnishelgin er 22. og 23. mars á Oulton Park. Keppnistímabiliđ stendur yfir í sjö mánuđi međ 22 keppnum á 11 keppnishelgum. Ekiđ verđur á öllum helstu brautum Bretlands, auk einnar keppni á Spa, Monza og í Búkarest, en ţar fer fram eini götukappakstur mótarađarinnar.
Sjónvarpsstöđin Sýn hefur tryggt sér sýningarrétt á Bresku Formúlu 3 og mun sýna allar keppnir ársins, auk ţess ađ gera mótaröđinni ítarleg skil í almennri umfjöllun um akstursíţróttir, en Formúla 1 verđur einnig á Sýn.
Carlin Motorsport er sigursćlasta liđ allra tíma Bresku Formúlu 3 međ samtals 79 sigra. Í ár er teflt fram sterkum hópi og fyrsta ćfing lofađi góđu. Carlin átti tvo hröđustu menn í meistaraflokki, Sam Abay og Oliver Turvey og tvo efstu í landsflokki, Andy Meyrick og Kristján Einar.
Nánari fréttir birtast hér á síđunni og fljótlega mun endurbćttur vefur um Kristján Einar og Formúlu 3 fara í loftiđ. Í millitíđinni má finna nánari upplýsingar og fróđleik um BF3 á heimasíđu mótarađarinnar www.fota.co.uk.