FRONT

NEWS

GALLERY

KRISTJAN EINAR

PRESS ROOM

RACE ROOM

2009 EUROPEAN F3 OPEN

2009 TEAM WEST TEC

2008 CARLIN MOTORSPORT

2008 BRITISH FORMULA 3

2008 TOYOTA RACING SERIES

FACEBOOK

LINKS

CONTACT

LOG IN

FRAMTÍÐARSTJÖRNUR FORMÚLUNNAR Tölfræðin sýnir að engin mótaröð skilar jafn mörgum ökumönnum í Formúlu 1 og Breska Formúla 3. Samkvæmt hefðinni eiga 8-10 úr þessum hóp eftir að koma þar við sögu í framtíðinni. Það þótti því við hæfi á þegar keppendur mættu á Spa-Francorchamps brautina á miðvikudag að hefja keppnishelgina á að stilla hópnum upp í Eau Rougue, einhverri frægustu beygju kappaksturssögunnar. Kristján Einar er hér fyrir miðjum hópnum með liðsfélögum hjá Carlin Motorsport Brendon Hartley, Jaimie Alguersuari og Oliver Turvey sem keppa í alþjóðaflokknum ásamt Sam Abay. Fjórmenningarnir settu nýtt met í sögu Formúlu 3 í fyrri keppni helgarinnar, þegar Carlin Motorsport átti 1 - 2 -3 -4 sætið í alþjóðaflokki kappakstursins. Það hefur aldrei gerst áður í F3.
 
Breska Formúla 3
Breska formúla 3 er elsta mótaröðin í F3 og viðurkennd sem harðasti skólinn á leið  til afreka í akstursíþróttum. BF3 hefur alið af sér fleiri meistara í akstursíþróttum en nokkur önnur mótaröð og hafa F1 meistarar á borð við Jackie Stewart, Mika Hakkinen, Ayrton Senna, Emerson Fittipaldi og Nelson Piquet hampað meistaratitlinum í BF3. 

Aðrir F1 ökumenn sem einnig sigruðu BF3 eru m.a. Takuma Sato og Rubens Barichello, en listi þeirra sem hafa keppt í BF3 er langur og í ár keppa 12 ökumenn í Formúlu 1 sem allir hófu feril sinn fyrir alvöru í Bresku formúlu 3. Sakar ekki að geta þess að af þeim 12 eru hvorki fleiri né færri en 8 sem voru þjálfaðir af Carlin Motorsport, keppnisliði Kristjáns Einar. 

Breska formúla 3 er tvískipt mótaröð þar sem annars vegar er keppt í Alþjóðflokki (International Championship) og hins vegar í Landsflokki (National Championship) sem er sá flokkur sem Kristján Einar keppir í. 

Munurinn á milli flokkanna felst í keppnisbílunum. Í landsflokknum er keppt á eldri bílum sem allar hafa samskonar 220 hestafla vélar frá Honda-Mugen, en í alþjóðflokknum er keppt á nýjum bílum og keppendum leyfilegt að velja á milli vélaframleiðandi og að gera meiri breytingar á tæknilegri uppsetningu bílanna en leyfilegt er í landsflokknum. 

Muninum á milli flokkanna er oft lýst þannig að sami ökumaður á að vera um 1,5 sekúndum fljótari að aka brautarhring á alþjóðaflokksbíl en á landsflokksbíl.  Þetta er þó ekki alltaf raunin, eins og oft hefur sést í keppnum í ár. Landsflokkur og alþjóðaflokkurinn aka saman í braut bæði á æfingum, í tímatökum og í keppnum, en keppni á milli flokkanna er engin, þ.e. landsflokksbíll græðir ekkert á að ljúka keppni með alþjóðaflokksbíla fyrir aftan sig og stigastaða alþjóðaflokksbíls breytist ekkert þótt hann ljúki keppni með landsflokksbíla fyrir framan sig.

Það að flokkarnir aka saman í tímatökum og keppnum hefur stundum valdið nokkrum miskilningi þegar fjallað er um þá tvo sem aka undir íslenskum fána, Kristján Einar í landsflokknum og Viktor Þór Jensen í alþjóðaflokknum en þeir keppa í sitt hvorum flokknum og aldrei sín á milli. 



Keppnislið Carlin í Bresku formúlu 3 2008

     
     
ENDANLEG ÚRSLIT BRESKU FORMÚLU 3 2008
LANDSFLOKKUR BF3
NATIONAL CLASS

 
ALÞJÓÐAFLOKKUR BF3
INTERNATIONAL CLASS

HEIMASÍÐA BRESKU FORMÚLU 3
KEPPNISTÍMABIL BF3 2008
1.&2.     OULTON PARK, GB
3.&4.     CROFT CIRCUIT, GB
5.&6.     MONZA, ITALY
7.&8.     ROCKINGHAM. GB
9.&10.   SNETTERTON, GB
11.&12. THRUXTON, GB
13.&14. BRANDS HATCH, GB
15.&16. SPA, BELGIUM
17.&18. SILVERSTONE, GB
19.&20. BUCHAREST, RUMANIA
21.&22. DONINGTON, GB

©theicelander management 2010                           contact webmaster:  contact@theicelandermanagement