Þegar
komið er út í jafn tæknilega flókinn kappakstur og formúla 3 er skiptir
keppnisliðið og kappakstursbíllinn ekki minna máli en ökumaður og
aksturshæfileikar Eitt af lykilatriðum þess að Kristján Einar gat
tekið stóra stökkuð úr karti og inn í F3 var að honum bauðst eftir
miklar æfingar og prófanir að keyra með Carlin Motorsport, sannkölluðu meistaraliði
sem hefur alið af sér frábæra kappakstursmenn, unnið 140 keppnissigra,
þrjá meistaratitla og er sigursælasta lið allra tíma í Formúlu 3. Í
Bresku Formúlu 3 keppnisliði Carlin í ár aka 2 bílar í landsflokknum,
Kristján Einar og Andy Meyrick og svo 4 bílar í meistaraflokknum,
Oliver Turvey, Brendon Hartley, Jamie Alguersuari og Sam Abay. Þessum
sex bílum fylgir um fjörutíu manna hópur bifvélavirkja, tæknistjóra,
tölvumanna, akstursþjálfara, vélamanna, dekkjamanna, trukkabílstjóra,
liðsstjóra, fjömiðlafulltrúa og annarra sem vinna með bíla og ökumenn.
Stjórnendur
liðsins hafa gífurlega reynslu af liðsstjórnun, tækniþróun og þjálfun
ökumanna, eins og stofnandinn, Trevor Carlin sem stýrði Jordan í F1. Um
60 manns starfa hjá liðinu og eru allar aðstæður til fyrirmyndar. Öflug
tækniþróunardeild er innan Carlin og tæknileg uppsetning keppnisbíla er
þróuð í vindgöngum Carlin Technologies.
Undanfarin
ár hefur Carlin átt keppnislið í ýmsum mótaröðum, s.s. Bresku Formúlu
3, A1GP, World Series by Renault, Formúlu Renault, Formúlu BMW og
Formúlu 3 Euroseries. Meðal ökumanna sem hafa ekið fyrir Carlin eru
Nico Rosberg, Takuma Sato, Bruno Senna, Sebastian Vettel, Robert
Kubica, Sebastian Buemi og Alvaro Parente, auk þess sem Carlin þjálfaði
menn á borð við Kimi Raikkonen, Jenson Button, Anthony Davidson ofl.
Myndin að ofan er tekin á Pembrey 19. febrúar þegar tilkynnt var um Kristján Einar inn í Carlin liðið í Bresku Formúlu 3.
HEIMASÍÐA CARLIN MOTORSPORT
TREVOR CARLIN
Það gerist ekki nema hjá toppliðum að ökumaður á 1. ári í
formúlukappakstri standi á verðlaunapalli í sinni 5. keppni - eins og gerðist hjá Kristjáni Einari og Carlin Motorsport á Monza.
"Kristján sannaði fyrir okkur að ákvörðunin um að láta hann stökkva
yfir árin 2-4 í neðri formúluröðum og þjálfa hann beint inn
í Formúlu 3 var einfaldlega rétt," sagði Trevor Carlin. "Hann er líklega sá þriðji í bresku mótorsporti sem afrekar þetta. Bruno Senna og Jenson Button komu beint úr karti i BF3 og unnu til verðlauna á 1. ári. Við höfðum væntingar um Kristján Einar og þær hafa bara aukist."