FRONT

NEWS

GALLERY

KRISTJAN EINAR

PRESS ROOM

RACE ROOM

2009 EUROPEAN F3 OPEN

2009 TEAM WEST TEC

2008 CARLIN MOTORSPORT

2008 BRITISH FORMULA 3

2008 TOYOTA RACING SERIES

LINKS

CONTACT

LOG IN

FORMÚLUTÍMABILIÐ HAFIÐ Á STÖÐ2 SPORT
Það fór ekki framhjá áhugafólki um Formúluna og kappakstur að tímabilið hófst um liðna helgi. Kristján Einar var gestur Gunnlaugs Rögnvaldssonar og Rúnars Jónssonar ásamt Nínu Kristmanns í beinni útsendingu frá fyrstu keppni F1 í Melbourne í Ástralíu og mætti á nýjan leik í þáttinn Við endamarkið til að gera upp keppnina ásamt Einari Viðarssyni. 

"Það var mjög gaman að fá að taka þátt í þessum útsendingum og ljóst að Stöð2 Sport ætlar að sinna Formúlunni með miklum glæsibrag," sagði Kristján Einar. "Það er verið að gera hlutina af miklum metnaði þarna og bara frábært að vita að umfjöllun um Formúlu 3 verður í höndum Gunnlaugs Rögnvaldssonar líka."

Stöð2 Sport hefur tryggt sér sýningarréttinn á öllum keppnum mótaraðarinnar sem Kristján Einar keppir í og mun sýna samantektarþætti eftir hverja hinna 11 keppnishelga. 

Gunnlaugur Rögnvaldsson
Rúnar Jónsson
Einar Viðarsson og Kristján Einar
 
Kristján Einar
Nína Kristmanns
 
©theicelander management 2010                           contact webmaster:  contact@theicelandermanagement